Sjaldan hefur jafn mikil fegurð verið samankomin á einum stað

alvöru kellingar hér á ferð!!!

25.06.2007 22:20:12 / Día

Smá bros

Fangi sleppur úr fangelsi þar sem hann hefur verið í 15 ár. Á flóttanum finnur hann hús og brýst inn í það til að leita af peningum og byssum, en finnur bara ungt par í rúmi.

Hann skipar stráknum að fara úr rúminu, og bindur hann fastann á stól. Síðan fer að hann að stelpunni til að binda hana. Á meðan hann er að binda stelpuna upp í rúmi fer hann uppá hana, kyssir hana á hálsinn og fer svo inná baðherbergi.

Á meðan hann er þar segir strákurinn við stelpuna: Hey þessi gaur er fangi sem hefur flúið, sjáðu bara fötin hans! hann hefur örugglega verið lengi í fangelsi og hefur ekki séð konu í mörg ár. Ég sá hvernig hann kyssti á hálsinn á þér. Ef hann vill kynlíf ekki segja nei og gerðu bara það sem hann segir þér að gera, veittu honum fullnægingu. Þessi gaur hlýtur að vera hættulegur og ef hann verður reiður drepur hann örugglega okkur bæði. Verstu sterk elskan, ég elska þig!

Konan svarar "Hann var ekki að kyssa á mér hálsinn, hann var að hvísla að mér og sagði að hann væri hommi og fannst þú vera mjög sexy og spurði hvort við ættum eitthvað vaselín inná klósetti. Vertu sterkur ég elska þig líka!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 14:42:21 / Hronn

Hrönn er mætt inn á stjórnborðið!

Hello my darlings!

Hvað segir unga fólkið í dag? Mér leiðist og fór því allt í einu að spá hver plönin eru í sumar...og komst að því að það eru allt of fá plön í gangi. Hvað ætlið þið sem verðið á landinu t.d. að gera um verslunarmannahelgina? ? ? Ég tel mig nefninlega vera of gamla til að fara á útihátíð..já, já það kemur að því að maður láti botoxa á sér feisið. Annars þið sem verðið úti á landi endilega látiði vita þegar þið komið í bæinn. Og Ólöf, hvenær er mér boðið í heimsókn? Ég og Ágústa erum að reyna að plana næsta Saumó því að handavinnan mín er búin að liggja ofan í skúffu allt of lengi (í alvörunni) ,....en að öllu gríni slepptu þá verðum við að fara að hittast allar og gera eitthvað saman...fara út að borða eða eitthvað sniðugt. Hvernig líst ykkur á það? Og hvenær myndi henta ykkur best?  BYE FOR NOW

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 15:57:40 / Iðunn

hej

hæhæ krakkar minir.... við píurnar erum her í sverge að hafa það rosa gott.... mættum í djammgallanum á flugvöllin og heltum í þessa ferð okkar.... hef aldrei verið eins lengi í djamm dressinu og þennan dag... rosa leiðinlegt að kveðja alla og misstum þvi miður af inga og ingó og sigrunu... en það verður bara enþá skemmtilegra að hitta þau þegar við komum heim... annas er allt rosa gott að fretta af okkur... erum bunar að finna flott kaffihus rett hjá heima hjá okkur þar sem er gott kaffi og NETTENGING íbúðin okkar er klikkuð ... setjum myndir af henni hingað inn bráðum... carina myndasmiður er að standa sig vel á myndavelinni.. samt pínu léleg... í gær var midummer... þa hittast alllir í garðinu með blómakrans á höfðinu og dansa... gaman það... og borða jarðaber og sild... eithvað letum við þettta framm hjá okkru fara . þar sem það var klikkuð rigning... láum bara í leti heima og horfðum á allt í sj´ðonvarpinu.. ju kiktum aðeins í dauðan bæinn.... en í dag er sól og gott veður... þannig að maður er aðeins buin að ná að sóla sig... byrjuðum að vinna á miðvikudaginnn... vinnan er svona lala ekkerty klikkað stuð en maður lifir þetta af ... í svona stuttan tíma... erum ekkki að vinna saman... carina er a mjög flottu hoteli og hun getur labbað í vinnuna... og vinnur með öllum íslendingunum... en neinei ég hinsvegar þarf að taka 2 strætóa og vinn bara með útlendingum!! klikkað stuð... enþað kemur vist ein íslenskk 1 júli... gaman það.... ætluðum bara aðeins að láta heyra i okkur.. og vist við erum bunar að finna þetta kaffhus þá eigið þið pottþétt eftir að heyra meira í okkur.... við sendum nokkrum sms með sænska numerinu okkar... er ekki með það nuna en skrifum það vonandi bráðum her... annas getið þið bara spurt águstu eða hrönn man að ég sendi þeim allavega... hafið það rosa gott.... miss you all!!! nanna bannað að hætta að setja myndir inn þó að þú sert komin heim á klakan...

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 22:55:46 / Día

Þvottur

Vá ég held að ég sé búin að þvo í það minnsta 7 þvottavélar í dag. Það eitt er varla frásögum færandi, en ég er líka búin að brjóta það allt saman og ganga frá því inn í skáp. Ég sakna svo að fá ekki þvottinn minn samanbrotinn eins og í denn í ML.....

Af mér er lítið að frétta. Við reynum að nýta lausar stundir í garðinn, er búin að setja fullt af sumarblómum og svona. OHhhh ég er svo mikil húsmóðir!

Sigrún kom í heimsókn í gær, færði mér tómata, við átum í tjaldó, og svo hjálpaði hún mér að baða strákana og passaði Ingvar á meðan ég kom Brynjari í rúmið. Takk fyrir hjálpina Sigrún! Brynjar á soldið erfitt þessa dagana að vera stóri bróðir. Hann er samt voða góður við Jökul, en á það til að vera lítill í sér og stundum óþægur við mömmu sína..... En annars gengur allt vel, og ég get ekki hugsað mér neitt betra líf en það er akkúrat núna, ég elska lífið mitt! Jú annars, Sölvi mætti alveg vinna svona helmingi minna, það væri fínt.

Unique píurnar Iðunn og Hrönn komu um daginn og Iðunn klippti mig og litaði og Hrönn aðstoðaði hana við það. Ekki má gleyma því að saman töfruðum við fram dýrindis máltíð. Takk fyrir það! Ekki amalegt að hafa svona "Haircut on Wheels"!!!

Skutlaði Freyju minni á flugvöllinn í gær með trega... hún verður í Þýskalandi (eða Fiskalandi eins og Logi segir) í allt sumar.

Hlakka svo til að hitta Solbakken Familíuna innan skamms!


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 18:51:06 / Nanna

...

... ég er að verða öflugasti bloggarinn á svæðinu bara :)

 

Vildi bara óska Sigrúnu til hamingju með útskriftina í dag!  (Held amk að það sé rétt hjá mér að það hafi verið í dag....)  Maður reynir að fylgjast með þó maður sé í útlöndum....

Og Svava var að verja B.S. verkefnið sitt á fimmtudag... hef nú ekki heyrt enn hvernig það gekk... ...Svava?

 

En vá hvað við erum að verða gamlar.... fyrst að við erum farnar að klára B.S. nám ... og verða útskrifaðir kennarar og eitthvað.... fjúff...  :)  Ég hélt að bara fullorðnar manneskjur gerðu svoleiðis!! :haha: 


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 13:54:39 / Nanna

barasta sorglegt!

Á ég að trúa því að þessi elskulega síða okkar sé bara að syngja sitt síðasta? Eða er hún bara að fara í sumarfrí....   ég vona það.... kíki hingað i hvert sinn sem ég fer á netið í von um að einhver hafi skrifað eitthvað án þess að hugsa að ég gæti nú kannski bara sjálf skrifað eitthvað :) 

 En við litla familían komum heim 28.júní og verðum heima (fyrir þær sem ekki vita) alveg fram yfir áramótin þar sem Eyþór er að fara í verknám á Selfossi í haust. Við komum til með að búa hjá pabba í sveitinni og þið vitið það að þið eruð allar velkomnar í heimsókn! Það væri sko baaara gaman að sjá ykkur. Svo munum við nú vonandi vera svolítið dugleg að fara til Rvk og auðvitað á Laugarvatn þar sem við Día og Ragnheiður ætlum að vera í mömmó saman :haha:

 En jæja... hvað segið þið? hvernig leggst sumarið í ykkur og hvar verðið þið á landinu/útlandinu í sumar? Edda hvenær kemuru heim og hvar verður þú að vinna í sumar? Eða verðuru að vinna? Ólöf, það kláraðist batteríið á símanum mínum um daginn og ég var stödd í Fisketorvet (eins og Kringlan) og gat því ekki komist til að hlaða. Ég hringdi aftur síðan seinni partinn en þá svaraðir þú ekki... hefði verið gaman að geta kíkt á þig fyrst þú varst hérna í Dk..! Hrönn, hvar verður þú í sumar? Ágústa, verður þú ekki bara á stofunni áfram? Sigrún, á Nordica væntanlega.... (eða á ég að segja Hilton)? Þið hinar... þá veit ég hvar þið verðið...  :)

 Jæja... látið nú aðeins heyra í ykkur. Veit alveg að þið eruð ekki netlausar (flestar amk) þar sem helv... myspace lifir góðu lífi ;)

kv. Nanna nýbakaða 8) 


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 19:42:36 / Iðunn

gautaborg útskriftir og tjútt

jæja krakkar minir.. þessi síða er nánast dauð:(.... gaman að segja frá því að eithvað fáir vinir minir komu á opnunina á nýju stofunni minnni... en rjómin kom þó þanig að þið sem komuð ekki leiðinlegt fyrir ykkur.... en þið sem vissuð það ekki. þá eftir 2 vikur þá verða ég og carina farnar af klakanum... ætlum að vera í sumar í gautaborg.. að chilla og sleikja sólinni... þannig að við sjáumst bara í september.... þannig að þið sem ætlið að koma í klippingu áður en ég fer endilega hafið samband og ég klippi ykkur eithvert kvöldið:) annas er bara málið að plana eithvað djamm áður en maður fer... allavega er hann ingi okkar að útskrifst úr háskólan!! belívitor not!!! ný komin frá mexikó ssá hann í dag hel tanaðan og sætan... sigrun okkar er líka að útskrifats þennn saman dag sem sagt 16 júni... hun er trúlega hel tönuð líka nýkomin frá marmaris en maður hefur nu ekki seð hana enþá... svo er svava að koma heim þessa sömu helgi þannig að það er nóg að gera... þannig að krakkar minir plönum eithvað tryllt tjútt!!!! allavega verið í bandi við mig um hvað þið eruð að plana... vil nu fara að sjá fleiri en 1 komment!! ok... hvað er málið með veðrið hér... er ekki komið sumar... sóli sammi og árni og fullt af örðu folki eru eiimitt nuna á marmaris að sleikja sólina og drekka!! væri til í að vera þau!! þó að mórallin eftir helgina er að drepa mig:(

» 11 hafa sagt sína skoðun