jæja...... þá er en einn mánudagur runnin upp....... og iðunn edrú 4 helgina sína í röð .... hvað segið þið um það er kellingin að standa sig eða hvað????
allavega þá nenni ég því ekki lengur þannig að stefnir allt í það að maður hrinji í það næsta laugardag....... þannig að ég er að leggja til að ALLIR FARI A FYLLERÍ NÆSTA LAUGARDAG það er árshátið í vinnuni minni á laugardaginn þannig að á meðan að ég er að drekka mig fulla og láta einsog fífl í 80' íþróttagalla allan daginn þá vil ég að þið hópið ykkur saman og drekkið og svo hittumst við um kvöldið og tjúttum saman alla nóttina það er svo helviti langt síðan að við höfum tjúttað saman..... þannig að er ÞAÐ ÞÁ EKKI ÁKVEÐIÐ?????
allevga verðum í bandi reynum kanski að gera eithvað flipp í vikuni... okey
bæjó
VIÐ TÖKUM Á ÞVÍ UM HELGINA
» 2 hafa sagt sína skoðun
Heyrðu ég var nú bara að taka eftir því núna að á linkinum´yfir á Brynjar Loga stendur þegar maður fer yfir þá stendur "krakkinn hennar Díu, en hjá Rakel Völu stendur Krúttið hans Bjössa og Hildar... Er minn ekki krútt líka eða hvað? Maður verður nú bara pínu sár sko.....
Annars allt gott að frétta hér, búin að vera að læra í dag og vinna í húsinu. vorum að hreinsa allt út því það eru að koma málarar á mánudaginn til að sparsla. Spennó spennó. "Krakkinn" í aðlögun á leikskólanum og allt gengur vel. Það verður munur að geta loksins lært eitthvað meðan hann er í leikskólanum til 2. Guð ég er að missa af Stelpunum, það má ekki gerast. Iðunn ég er búin að panta í klippingu á föstudaginn, vertu búin að hanna eitthvað klikkað flott.
Hafðu það nú sem allra best á afmælisdaginn, sé þig nú eftilvill eitthvað
M.v. Hilsen
Dine naboer....
» 11 hafa sagt sína skoðun
heyrst hefur að það se kaffihúsa hittingur í kvöld....
nefnið bara hvar og hvenær og ég mæti
hvað segið þið um 10 á ölstofuni eða hressó eða bara eithvað.... eða gamla góða brennslan stendur alltaf fyrir sínu...
hlakka til að heyra íýkkur
» 8 hafa sagt sína skoðun
hæhæ
hvað segiði nú gott...já ég er bókstaflega að drukna í verkefnum og ritgerðum....Sigrún þegar þú verður orðin kennari þá er bannað að setja öll verkefni og próf og þess háttar í lok okt byrjun nóv.... vertu svoldið viltur kennari og komdu með þín verkefni í september.....
núna er ég að gera ritgerð (ásamt því að gera önnur verkefni og reyna að læra allt það sem ég nennti ekki að læra í vetur ) og við máttum velja ritgerðarefni...en var samt bundið við námsefni vetrarins. Ég valdi mér að skrifa um þvagleka...já ég veit þetta hljómar ÓGÓ spennÓ en er samt mjög áhugavert...og maður fer svona ósjálfrátt að gera grindarbotnsæfingar....sem eru nauðsynlegar...Ég á vísu ekki að skila henni fyr en 25. nóv (N.B. sem er síðasti sóladagurinn minn.. ) En ég byrja í verknámi 8. nóv til 24. nóv og þá er víst svo klikkað mikið af verkefnum að maður getur ekkert gert í þessari ritgerð þannig ég hef rúma viku eftir....og meðan ég man þá hata ég stundum tölvur eða hata hvað ég er heimsk í tölvur...t.d. áðan þá var ég búin að skrifa 5 blasíður sem voru svona punktar fyrir ritgerðina úr mörum greinum en svo var´ég að slökva á tölvunni og gleymdi að sava....já ég veit ég er HÁLFVITI...þar sem þetta er nú ítrekað áður en maður slekkur...en best að vera bara fljótfærnust í heimi ýta bara á no........ en sem betur fer var ég búin að sava 3 og´ 1,5 bls áður þannig að ég verð svo sem ekki lengi að alga þetta, eða ég vona að...varð bara að fá útrás áður en ég byrja aftur...
Á að gera eitthvað um helgina....ég er að vinna næstu 2 helgar...ég er ekki að nenna því...
Jæja ætla að hætta að pirrast yfir þessu og reyna að halda áfram....og kannski fá mér súkkulaði...oooþað er svo gott...en samt var ég nú búin að ákveða að fara í átak þar sem um síðustu helgi var ég spurð tvisvar sinnum hvort ég væri ólétt og ekki til að bæta það þá var það af bláókunugu fólki....
hætt í bili... og ég nenni ekki að lesa þetta yfir til að fara í gegnum stafsetningarvillur enda er ég vissum að það mindi ekki breyta neinu... ekki með 0 í stafsetningu fyrir ekki neitt...
» 3 hafa sagt sína skoðun
» 7 hafa sagt sína skoðun
» 4 hafa sagt sína skoðun
Ég er sko ekki að fara að nenna í skólann á morgun eftir viku frí. Það eru semsagt allir búnir að vera í haustfrí hérna í köben nema Nanna greyið hún þurfti þess í stað að vera til hálf níu öll kvöld í skólanum.
Ég ætlaði semsagt að vera rosalega dugleg í þessu haustfríi og læra alveg fullt en ég komst varla í að opna eina bók allan tíman. Við byrjuðum fríið á að fá þá hugmynd í hausinn að það gæti verið gaman að skella sér til Þýskalands og drifum í að panta okkur bílaleigubíl og svo keyrðum við nokkrir krakkar til Hamborgar daginn eftir. Ferðin tók ekki nema 4 klukkutíma enda keyrðum við allan tíman á hraðbrautinni á c.a 140 - 160 ..km/klst ég hélt ég myndi deyja úr hræðslu allan tíman og Narfi fékk sko aldeilis að heyra öskrin í okkur stelpunum á köflum, strákarnir sátu sem rólegastir. Svo var bara verslað og djammað, við fórum á svokallaða aðaldjammgötuna í borginni en þar voru ekkert nema strippbúllur og hórur um allt en við létum okkur hafa það og fórum inn á eina slíka en vorum fljót að fara út aftur. Það er ekki eðlilegt hvað það er mikil klámmenning hjá þjóðverjum. Það eru klámbúðir og strippstaðir á hverju horni. Það fyrsta sem ég sá þegar ég fór til Berlínar núna fyrr á árinu það voru gayfánar út um allt og latexgallar í búðargluggunum.
En þrátt fyrir allt þá var Hamborg mjög falleg og hugguleg (fyrir utan rauðahvefið) . Svo var haldið heim og við rétt náðum ferjunni til Sjálands um kvöldið.
Á föstudaginn var síðan útskriftarveisla hjá Narfa og Árna frá Háskóla Íslands. Veislan var haldin í sal hérna á Sólbakken og var bara virkilega skemmtileg. Við gerðum okkar besta í að bjóða hverri einustu hræðu sem við þekkjum hérna í köben svona til þess að 80 manna salur myndi ekki virka alltof tómlegur og við nýbúin að kaupa fullt af ódýrum bjór frá Þýskalandi. Það mættu nú bara flestir.. meðal annars Ragnhildur og Benjamín sem voru í heimsókn hjá Nönnu og Eyþóri. En allavega við vorum til klukkan 7 um morguninn á djamminu og farið í eftirparty úti í bæ og alles.. mjög skemmtilegt og ég held ég sé búin að skrifa nóg í bili,, ætla að fara að læra
látið heyra í ykkur...
hilsen.. Svava
» 0 hafa sagt sína skoðun
EKKERT get ég sagt ykkur um síðsutu atburði airwaves vegna ofurölvunar og mikilar dópneyslu síðustu daga
eina sem ég egt sagt er þaða ð hljómsveitagaurar kveikja í mér!!!
» 1 hafa sagt sína skoðun
airwaves dagur nr. 1
jæja dagur eitt buinn og ohh boy ohh boy við erum ekki í grininu með það að það var blautur sviti sem lak niður andlit flestra sem staddir voru á grand rokk í gær.... hitin var það mikill föt fengu að fjúka og allt var latið flakka.... vorum ekki sviknar að helviti góðum tónleikum hjá benny craspos gang... mæli með fyrir alla að kíkja á þá einhvern tíman þegar þeir eru í bænum
allavega airwaves byrjar vel þannig að ég held að næsti kvöld eigi ekki eftir að klikka
bæþövei þið sem eruð í vogar merkinu tjekkið á stjörnu spánni ykkar á blaðinu í dag!!!! klikkað
njóttu ástarinnar
Elsku besta Sigrún mín.... þú skalt ekki halda að ég hafi gleymt afmælinu þínu!!! Ok, þetta hljómar auðvitað eins og alltaf.... en ég hef sko alvöru afsökun... ég var nefnilega í skólanum í gær til 21:30 og kom þá heim og beint að læra þar sem ég var að fara í 40 síðna verklegan tíma í dag og átti eftir að lesa alla fokk..... tilraunina.... þannig að ég komst bara engan veginn á netið.... sorry sorry sorry.... en allavega Til hamingju með afmælið í gær din gamle!!
En já....Sælar allar saman.... já ég er á lífi... fyrir þær sem ekki vita af blogginu hjá okkur eyþóri... og þið sem vitið um.... það er sko bannað að laumast til að kíkja á það án þess að kasta kveðju á móti en jæja... það er sem sagt brjál... að gera... var að koma heim úr skólanum... og klukkan er 20:40... hvað er málið!!??? jú, málið er nebbla það að ég er að taka svona auka-kúrs ofan á allt annað þannig að þegar ég er búin í skólanum (t.d. kl 16:30 í dag) fer ég á annan kúrs sem er fram á kvöld... æði...??.... emm... nei!!! en svona er þetta bara... ég var bara kauli að gera þetta ekki á 1.önninni og verð bara að bíta í það súra núna... en sem sagt.... nú er ég að nota kvöldmatarhléið mitt í að bulla hérna eitthvað sem enginn nennir að lesa um... best að fara að lesa meir...... sem sagt.... nóg að gera hér... eiginlega allt of mikið... more, later
Med venlig hilsen
hej hej
jæja þá er það ákveðið..........
allir að fara út í skífu NÚNA og kaupa miða á airwaves....
sláum þessu bara upp í kæruleysi þó að við eigum engan pening við eigum eftir að sja´eftir þessu alla helgina ef við kaupum ekki miða....
þannig að nuna allir að redda ser 5000 kalli og bara skella ser á miða og höfum klikkað gaman
hlakka klikkað til.......
ég veit ekkert hvort ég skrifa airwaves rétt en þiðsklijið þetta...... ég kann ekki útlensku