hæhæ
ákvað að henda inn eins og einni færslu... já er á fullu í
jólaundirbúning... búin að skreyta eitthvað og baka eitthvað og er að
rembast við að skrifa jólakort... er samt ekki að hafa allan heimsins
tíma sem ég ýmindaði mér að ég myndi hafa þar sem ég væri ekki í
próflestri...
en já ég var í köben um síðustu helgi... fór út 4 des og kom heim
9...hittumst systurna þar... Ragga kom með Hildi Kristínu frá Ítalíu og
Gróa var náttulega bara heima hjá sér í Köben... með sýnar yndislegu
stelpur og náttulega Bjögga líka

... en ferðin var í allastaði
æðisleg... fyrir utan fyrsta daginn minn en þá var ég RÆND... taskan
tekin með öllu.... þá meina ég öllu... ég sem er yfirleitt mjög
passasöm passa að geyma ekki allt á sama stað gleymdi mér aðeins og var
með alla peningana, kortin, síman, vegabréf og bara allt í
verskinnu..... en ég ákvað að láta ræningjana ekki ræna af mér ferðinni
líka og bara reyndi að gera gott úr þessu... við systur vorum
allavegana faranar að hlæja af þessu næsta dag...og gera grín...
en þar sem ég var með síman í töskunni þá tapaði ég öllum númerum þá
væri æðislegt ef þvð tímið

að senda mér eins og 1 stykki SMS þannig
að ég fái númerinn ykkar aftur... og munið þá að hafa nafnið ykkar með
en voandi sjáumst við sem fyrst...
kveðja
Ólöf