Já góðir gestir, maður er nú að hneppa öðrum hnöppum en bloggskrifum þessa dagana. Og Guðlaug...þetta með að við séum 3 að skrifa er orðið mjög umdeilt.

Núna er ég hjá Díu og reyni að róa hana niður eftir fremsta megni....nei grínlaust þá er húm svo slök að ég á í erfiðleikum með að vekja hana á morgnana.
Færeyjaferðin var fín og skemmtileg, ég nenni ekki að blogga um hana núna. Eitt get ég þó sagt. Færeyjar komu mér mikið á óvart.

Br.kaupið verður án efa það skemmtilegasta

sem sögur fara af, að minnsta kosti hlökkum við öll ofboðslega til.
Svo tekur hversdagsleikinn við

þegar heim kemur og þá yljar maður sér við minningarnar.

Jæja verð að fara á Selfoss að kaupa ALLT sem vantar og eins gott að gleyma engu. Bara gaman að lifa í dag